Velkomin á Sólskinsvefinn

Sólskinsvefurinn er náttúrufræðivefur sem er ætlað að styðja við kennslu í náttúrufræðum og umhverfismennt. í 1. - 7. bekk.  Á honum er hægt að nálgast verkefni sem má nýta beint í kennsluna eða sem ítarefni fyrir kennarann.  Efnið er ýmist tekið saman, aðlagað eða samið af áhugasömum kennurum í Selásskóla um náttúrufræðikennslu og umhverfismennt. Þess vegna er vefurinn litaður af áherslum Selásskóla í þessum fræðum. Öllum heimilt að nýta það efni sem er vefnum er svo framarlega sem heimilda sé getið í samræmi við gildandi reglur. Það er von okkar að vefurinn muni nýtast vel sem fróðleiksnáma um náttúrufræðikennslu og umhverfismennt.

Líkamsvafri Google

Veftækninni fleygir stöðugt fram og samfara því aukast möguleikarnir á að nýta vefinn til náms og kennslu. Á vefnum má víða finna prýðilegt efni og verkfæri sem hægt er að nýta án annars tilkostnaðar en þann að verja smávegis tíma til að kynna sér möguleika efnisins eða verkfærisins. Google hefur sent frá sér ókeypis verkfæri sem lofar ansi góðu. Verkfærið kallast líkamsvafri Google og með því er hægt að skoða mannslíkamann í sex mismunandi lögum og frá öllum sjónarhornum. Líkamsvafri Google gerir kröfur um nýjustu veftækni þannig að til að nota hann þarf nýjustu útgáfur vefskoðara. Við hvetjum kennara til að kynna sér þetta verkefæri með því að skoða kynningu sem Sigurður Fjalar hefur tekið saman á vefsíðu sinni. Sjá kynninguna hér.

Norræni loftslagsdagurinn
Norræni loftslagdagurinnÞað hefur varla farið fram hjá nokkrum manni hversu mikil áhrif jafnvel minnstu loftslagsbreytingar hafa á vistkerfið. Hlýnun andrúmsloftsins hefur til dæmis haft ýmsar ófyrirsjáanlegar afleiðingar hér á landi. Nýjar tegundir lífvera eru farnar að sjá Ísland sem vænlegt búsvæði sem að sjálfsögðu veldur tímabundnu róti í vistkerfinu og setur jafnvel samskipti okkar við önnur lönd úr jafnvægi. Sú staðreynd að makríll sé farinn að vaða hér um allan sjó er skýrasta dæmið um það. Í ljósi þessa er mikilvægt að kennarar reyni að efla skilning nemenda sinna og ábyrgð gagnvart andrúmsloftinu. Norræni loftslagsdagurinn verður þann 11. nóvember og er kjörið fyrir kennara að nýta sér það efni sem er honum tengt. Sérstök heimasíða er helguð deginum en þar má nálgast kennsluefni til að nýta í kennslu um loftslagsmál.   
Oxfam Education
oxfamkidsOxfam er aþjóðleg hreyfing fólks sem reynir með sameinuðu átaki að bæta lífsskilyrði fátæks fólks víða um veröld. Áhersluþættirnir í starfsemi hreyfingarinnar eru meðal annars að hafa áhrif á ráðamenn svo þeir taki ákvarðanir með hag fátækra í huga og að standa fyrir verkefnum sem gerir fátæku fólki kleyft að brjótast af eigin rammleik úr viðjum fátæktarinnar. Því miður eru misvitrar ákvarðanir oft teknar á æðstu stöðum sem hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir lífsafkomu fólks. Rangar ákvarðanir sem taka ekki mið af þeim umhverfisáhrifum sem þær hafa og geta einfaldlega steypt fólki í sára neyð.
Unga fólkið eru leiðtogar framtíðarinnar og því er mikilvægt að kenna því að taka afstöðu til mála sem byggir á réttsýni, sterkri umhverfisvitund og hagsmunum heildarinnar. Þess vegna heldur Oxfam úti öflugum vef sem er heilmikill brunnur kennsluverkefna og íhugunarefna fyrir kennara. Það er vel þess virði að kynna sér málið.
Joseph Cornell
Joseph CornellHugmyndafræði Joseph Cornell á erindi við alla þá sem áhuga hafa á umhverfismennt og því að efla tengsl sín við náttúruna. Cornell setti af stað verkefni sem hann kallar Sharing Nature árið 1979 sem er helgað því að efla tengsl fólks við sitt nánasta umhverfi, kenna því að opna sig fyrir umhverfi sínu og upplifa náttúruna á dýpri og meiningarfyllri hátt en það gat áður. Kennsluaðferðin sem Cornell notar í þessum tilgangi kallar hann Flow Learning þar sem áherslan er á náttúruupplifun í gegnum leiki og ýmis náttúruverkefni. Hugmyndafræði Cornell hefur haft heilmikil áhrif í umhverfismennt víða um heim. Bækur Cornells hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál og sjálfur hefur hann farið víða til að kynna nálgun sína á umhverfiskennslu. Upphafið má rekja til fyrstu bókar Cornell, Sharing Nature with Children. Þeir sem vilja kynna sér hugmyndafræði Cornell smelli hér
Sólskinsvefurinn er ekki alveg tilbúinn en en það má kannski nota það litla sem er komið á hann.

Fróðleikshornið

 

Hefur þú tekið eftir því hvað fuglar eru duglegir að finna ánamaðkana ofan í moldinni?

Hvernig ætli þeir fari að því?

Vinalundur

  • Vinalundur

    Hvað er Vinalundur.
    Smelltu hér

  • Trén í skóginum

    Hvaða tegundir trjáa eru í skóginum okkar.
    Smelltu hér

     

     

  • Blómin og gróðurinn

    Hvaða gróður er í skóginum.
    Smelltu hér


  • Fuglarnir í skóginum

    Hvað fuglar eiga heima í Vinalundi og nágrenni.
    Smelltu hér

  • Dýrin í skóginum

    Hvaða dýr ætli eigi heima í skóginum.
    Smelltu hér
  • Að læra í skóginum

    Hvað erum við að gera í Vinalundi.
    Sjá hér